Uppfærsla: Júní 2026

U

Við höfum nú lokið við stóra uppfærslu og erum spennt að kynna fjölbreytt úrval af betrumbótum og nýjum aðgerðum sem miða að því að gera daglegan rekstur ennþá einfaldari og skilvirkari. Payday heldur áfram að þróast í takt við þarfir notenda og það er okkur sönn ánægja að deila þessum nýjungum með ykkur.

Leit í afstemmingu

Við höfum bætt leitarglugga við afstemminguna. Þetta auðveldar til muna að finna ákveðnar færslur þegar listi er orðinn langur eða verið er að vinna í gögnum frá mörgum mánuðum í einu.

Reikna beint í upphæðarreitum

Nú er hægt að nota einfaldar reikniformúlur beint í upphæðarreitum – t.d. =10*1200 eða =5000+2500. Kerfið reiknar niðurstöðuna sjálfkrafa. Þetta kemur sér vel þegar verið er að reikna heildarverð, skipta útgjöldum eða vinna með magn og einingarverð.

Hlaða upp mörgum útgjöldum í einu

Áður var aðeins hægt að hlaða upp einni skrá í einu í útgjaldakerfi Payday. Nú er hægt að velja margar skrár í einu í gegnum „Hlaða upp PDF eða mynd”. Kerfið vinnur þær í bakgrunni og uppfærir listann þegar vinnslunni er lokið – þannig missir þú ekki samhengi á meðan beðið er. Þetta hentar sérstaklega þegar verið er að skrá útgjöld eftir ferðalög eða mánaðarleg uppgjör.

Gervigreind (AI) les inn línur á útgjöldum

Gervigreind (AI) les nú inn einstaka línur á reikningum og kvittunum – ekki bara heildarupphæðina. Þegar þú hleður upp mynd eða PDF af reikningi mun Payday reyna að greina allar línurnar sjálfkrafa og fylla þær út. Þetta sparar töluverðan tíma þegar verið er að meðhöndla reikninga með mörgum línum.

Forskoðun (e. preview) á viðhengi í útgjöldum

Þegar útgjöld eru með fleiri en eitt viðhengi er nú hægt að fletta í gegnum þau beint á útgjaldasíðunni – án þess að þurfa að opna hvert og eitt sér. Þetta auðveldar yfirferð og samanburð skjala.

Sjálfvirkar bankafærslur í afstemmingu

Áður þurfti notandi að sækja bankafærslur handvirkt í fyrsta skipti til að færslur yrðu framvegis sóttar sjálfkrafa. Við höfum nú breytt þessu þannig að bankafærslur eru sóttar sjálfkrafa um leið og þú opnar afstemminguna – engin auka skref þarf.

Lágmarks- og hámarks gjöld í stéttarfélög

Sum stéttarfélög eru með félagsgjöld sem eru ákveðin prósenta en þó að hámarki eða lágmarki ákveðinni upphæð. Dæmi um þetta er SFF þar sem félagsgjald er 0,7% en að hámarki 5.500 kr. Payday styður nú þessar reglur sjálfkrafa og reiknar rétta upphæð félagsgjalda miðað við þak eða gólf hvers sjóðs.

Óskattskyld laun erlendra sérfræðinga

Payday styður nú sérstaka meðhöndlun á óskattskyldum launum erlendra sérfræðinga samkvæmt reglum Skattsins. Nýr sjálfgefinn launaliður – „Óskattskyld laun erlends sérfræðings 25%” – er nú aðgengilegur. Staðgreiðsla reiknast ekki af þessum launalið, en upphæðin kemur rétt inn í launastofn í skilagreinum staðgreiðslu eins og Skatturinn krefst.

Staðfesting við eyðingu launakeyrslu

Til að koma í veg fyrir að notandi óviljandi eyði launakeyrslu kemur nú upp staðfestingargluggi þegar reynt er að eyða launakeyrslu. Þetta auka skref til viðbótar kemur í veg fyrir margs konar vandræði.

Lífeyrissjóðsgreiðslur

Við höfum tryggt að mótframlags prósentur séu aðeins í boði hjá þeim sjóðum sem þær eiga við. 16,36% er nú eingöngu hægt að velja hjá starfsmönnum í LSR, og 16,00% er eingöngu í boði hjá EFÍA. Þetta kemur í veg fyrir rangar stillingar og tryggir að bókhald og skilagreinar séu alltaf nákvæmar.

Afrita vörur

Nú er hægt að afrita vöru í vörukerfinu með einum smelli. Allar upplýsingar um vöruna, að birgðastöðu undanskildri, flytjast yfir á afritið. Þetta hentar þegar verið er að stofna svipaðar vörur eða nýjar útgáfur af vörum sem eru þegar til.

Athugasemdir á starfsmannaspjald

Hægt er nú að bæta við athugasemdum beint á starfsmannaspjald. Þetta gefur möguleika á að geyma viðbótarupplýsingar við hvern starfsmann á þægilegan hátt.

Kozmoz samþætting við Payday

Kozmoz er sérhannað verkbókhaldskerfi fyrir íslenska iðnaðarmenn – einfalt í notkun, aðgengilegt bæði í vef og appi og les sjálfvirkt inn reikninga fyrir útlögðum kostnaði frá birgjum og tengir við rétt verkefni. Samþætting milli Kozmoz og Payday býður upp á einfaldari og skilvirkari vinnuferla.

Tengingin er sett upp á örfáum sekúndum og gerir notendum kleift að skrá vörur beint úr vörulista Payday inn á verk í Kozmoz.

Við útskuldun má svo flytja gögn úr Kozmoz – svo sem tímaskráningar, útlagðan kostnað og vörur af lager – beint yfir í Payday. Þetta sparar verulegan tíma, minnkar handvirkan innslátt og dregur úr villuhættu, sem skilar sér í nákvæmari og hraðari reikningagerð.

Nánar á www.kozmoz.app

Smáatriðin skipta máli – Ýmsar breytingar

  • Orlof lagt í banka: Launalistinn í Excel sýnir nú sundurliðun á reiknuðu orlofi og þeim hluta sem lagður er inn á orlofsreikning eftir skatt.
  • Sleppa 0 stöðum í hreyfingalista: Þegar hreyfingalisti er tekinn út í Excel flokkað eftir lánardrottnum eða viðskiptavinum er nú hægt að sleppa þeim sem eru með 0 stöðu – eins og í stöðulistanum.
  • Lengri tilvísun: Tilvísunir geta nú verið allt að 40 stafir (áður 25).
  • Tilvísun fylgir með úr sölupöntun: Þegar reikningur er stofnaður úr sölupöntun fylgir tilvísunin sjálfkrafa með yfir á reikninginn.
  • Fókus við nýja færslu: Þegar stofnuð er ný útgjöld, reikningur, áskrift, tilboð eða sölupöntun er nú sjálfkrafa fókus á fyrsta reit – þannig er hægt að byrja að slá inn gögn strax án þess að þurfa að smella fyrst.
  • Örvalyklar til að velja fyrirtæki: Hægt er nú að nota örvalykla til að velja fyrirtæki við innskráningu og þegar skipt er á milli fyrirtækja inni í kerfinu.
  • Mælaborð: Textanum „Launatengd gjöld” hefur verið breytt í „Laun og launatengd gjöld” til að endurspegla betur hvað talan inniheldur.
  • Útgjöld í drögum: Kassinn á yfirlitssíðu sýnir nú öll útgjöld í drögum óháð ári – ekki bara það yfirstandandi.

Villuleiðréttingar

  • Afturkallun útgjalda: Hægt er nú aftur að afturkalla útgjöld sem var verið að eyða.
  • Greiðsla á útgjöldum: Þegar útgjöld hafa verið að hluta jöfnuð eru eftirstöðvarnar nú sjálfgefin greiðsluupphæð í stað heildarinnar. Villuskilaboð eru einnig skýrari og sýna nákvæmar upphæðir.
  • Kóðaafritun á 5 stafa bókhaldslyklum: Þegar 5 stafa bókhaldslykill er afritaður er ný röðunarnúmer nú búið til rétt í stað þess að setja „0″.
  • Leit í færslubók: Leit eftir fullu fylgiskjalsnúmeri (t.d. S260001270) skilar nú réttum niðurstöðum.
  • Afskriftir á mælaborði: Afskriftir koma nú rétt inn í hagnaðartöluna í rekstraryfirliti á mælaborðinu.
  • Sækja reikninga í Excel: Þegar reikningar eru sóttir í Excel eða ZIP tekur kerfið nú tillit til leitarstrengsins í yfirlitinu.
  • Núllskýrslur lífeyrissjóða: Hægt er nú að senda inn núllskýrslur lífeyrissjóða handvirkt undir Yfirlit > Lífeyrissjóður ef sending misfarðist í fyrstu.

Við vonum innilega að þessar uppfærslur komi að góðum notum. Við þökkum kærlega fyrir allar þær ábendingar og athugasemdir sem við fáum frá ykkur – þær eru ómetanlegar í þróunarvinnunni.

Vissir þú?

  • Mynd af kvittunum: Vissir þú að þú getur tekið mynd af kvittunum í símanum þínum og sent þær beint inn í Payday? Þú getur annað hvort hlaðið þeim upp í gegnum útgjöld eða sent þær í tölvupósti á “[email protected]”.
  • Bókhaldslyklar: Þú getur bætt við eins mörgum bókhaldslyklum í Payday og þú vilt ef þú vilt t.d. sundurliða allan kostnað. Farðu í Bókhald og veldu þar bókhaldslykla og smelltu á “Bæta við bókhaldslykli” til að fylla út upplýsingar um nýja lykilinn.
  • Bankatenging: Þú getur tengt bankann þinn við Payday til að stofna kröfur og sækja bankafærslur í afstemmingu. Farðu í Stillingar, veldu Fyrirtæki og smelltu á Banki til að virkja tenginguna.
  • Vörukerfi: Ef þú ert með verslun eða vefverslun, þá býður Payday upp á einfalt vörukerfi sem gerir þér kleift að stýra vörum, sjá hreyfingar og velja vöru á reikninga, tilboð og áskriftarreikninga.
  • Bjóða vinum: Þú getur boðið vin að nota Payday undir “Bjóða vinum” í flipanum vinstra megin. Þeir sem skrá sig með hlekknum fá 30% afslátt í 3 mánuði og þú færð 30% af áskriftargjaldinu þeirra sem afslátt af þínu eigin gjaldi í 6 mánuði.

Nýjungar á leiðinni!

  • Reglur í afstemmingu
  • Innskráning með rafrænum skilríkjum og Passkey
  • Innlestur áskriftarreikninga í gegnum Excel
  • Greina flokka á útgjöldum með gervigreind (AI)
  • Magn vinna útgjöld (bóka, eyða, merkja sem greidd)
  • Fagaðila portal – yfirsýn yfir þína viðskiptavini, skrá ný félög, stjórn reikninga o.fl.
  • Uppgjör frá kortafyrirtækjum í afstemmingu
  • Verkbókhald og tímaskráning

Lesa meira um hvað er á dagskrá hjá okkur í hugmyndabanka Payday


Við hvetjum notendur til að tryggja öryggi á Payday aðgangnum sínum.

Tveggja þátta auðkenning

Hvernig tryggi ég öryggi á Payday aðgangnum mínum

Um höfund

Payday

Payday er heildstæð lausn fyrir rekstraraðila sem vilja sterka fjármálastjórnun og tryggja skýra yfirsýn.

Nýlegar færslur

Söfn

Flokkar