Við höldum áfram að fínpússa Payday til að gera hversdaginn þinn einfaldari. Í þessari útgáfu lögðum við sérstaka áherslu á að flýta fyrir vinnslu og gera það mun auðveldara að leiðrétta færslur án þess að þurfa að byrja frá grunni.
Einfaldara að breyta reikningum og útgjöldum
Við vitum að villur geta átt sér stað. Nú er komin ný aðgerð inni í reikningum og útgjöldum sem gerir þér kleift að „breyta“ þeim með einum smelli.
- Hvernig virkar það? Kerfið kreditfærir eða bakfærir sjálfkrafa gömlu færsluna og býr til nýtt afrit í drögum. Þú þarft bara að gera breytinguna og staðfesta – engin þörf á að handslá allt inn aftur.
Jöfnun á útgjöldum og reikningum
Við kynnum nú öfluga virkni sem gerir þér kleift að jafna greiðslur á útgjöldum og reikningum beint á móti lánardrottnum og viðskiptavinum. Við höfum verið með þetta í BETA en nú hefur jöfnunin verið opnuð fyrir alla viðskiptavini í Allur pakkinn áskriftinni. Þetta einfaldar afstemmingar til muna og gefur skýrari sýn á heildarstöðu við hvern aðila.

Aukinn hraði í dagbók og innflutningi
Við höfum uppfært bakendann til að mæta þörfum þeirra sem eru með mikið magn gagna.
- Dagbókin: Er nú orðin mun hraðari í vinnslu (hámark 100 færslur birtar í einu til að tryggja afköst).
- Innflutningur útgjalda: Þessi hluti kerfisins hefur fengið andlitslyftingu hvað hraða varðar og leyfir nú allt að 500 færslur í einu.
Betri stýring á kreditfærslum
Þegar greiddur reikningur er kreditfærður getur þú nú valið hvort eigi að stofna endurgreiðslu eða ekki. Þetta veitir aukinn sveigjanleika þegar verið er að leiðrétta bókhald án þess að peningar eigi að hreyfast í banka.
Ýmsar endurbætur
- Gistináttaskattur: Nú er hægt að meðhöndla gistináttaskatt sem skuld á reikningum.
- Betri afstemming: Við höfum bætt við vörnum sem koma í veg fyrir að bankafærslum sé hlaðið upp fyrir kreditkortareikninga og öfugt. Einnig er nú hægt að láta eldri kreditkortalykla birtast í afstemmingunni.
- Apple notendur: Nú virkar Command + click eins og til er ætlast í kerfinu.
- Rafrænir reikningar: Innlestur á rafrænum reikningum aðlagaður þannig að reikningar með röngum upplýsingum um afslætti eru lesnir rétt inn í Payday.
Vissir þú?
- Mynd af kvittunum: Vissir þú að þú getur tekið mynd af kvittunum í símanum þínum og sent þær beint inn í Payday? Þú getur annað hvort hlaðið þeim upp í gegnum útgjöld eða sent þær í tölvupósti á “[email protected]”.
- Bókhaldslyklar: Þú getur bætt við eins mörgum bókhaldslyklum í Payday og þú vilt ef þú vilt t.d. Sundurliða allan kostnað. Farðu í Bókhald og veldu þar bókhaldslykla og smelltu á “Bæta við bókhaldslykli” til að fylla út upplýsingar um nýja lykilinn.
- Bankatenging: Þú getur tengt bankann þinn við Payday til að stofna kröfur og sækja bankafærslur í afstemmingu. Farðu í Stillingar, veldu Fyrirtæki og smelltu á Banki til að virkja tenginguna.
- Vörukerfi: Ef þú ert með verslun eða vefverslun, þá býður Payday upp á einfalt vörukerfi sem gerir þér kleift að stýra vörum, sjá hreyfingar og velja vöru á reikninga, tilboð og áskriftarreikninga.
- Bjóða vinum: Þú getur boðið vin að nota Payday undir “Bjóða vinum” í flipanum vinstra megin. Þeir sem skrá sig með hlekknum fá 30% afslátt í 3 mánuði og þú færð 30% af áskriftargjaldinu þeirra sem afslátt af þínu eigin gjaldi í 6 mánuði.
Nýjungar á leiðinni!
- Fagaðila portal – yfirsýn yfir þína viðskiptavini, skrá ný félög, stjórn reikninga o.fl.
- Uppgjör frá kortafyrirtækjum í afstemmingu
- Verkbókhald og tímaskráning
Lesa meira um hvað er á dagskrá hjá okkur í hugmyndabanka Payday
Við hvetjum notendur til að tryggja öryggi á Payday aðgangnum sínum.
