Hvað þýðir álagning? Á ég von á endurgreiðslu frá Skattinum eða þarf ég að borga til baka?
Sumarboðinn er mættur: Álagningarseðillinn. Þessi skilaboð birtast á Ísland.is og vekja ýmsar tilfinningar – allt eftir því hvort þú færð endurgreitt eða þarft að borga skatt.
Álagningarseðill er árlegt yfirlit frá Skattinum sem sýnir niðurstöðu skattframtalsins. Hvort þú hafir greitt of mikið eða of lítið í skatt á síðasta ári. Út frá því fæst annað hvort endurgreiðsla eða greiðsluskylda.

Hvað stendur á álagningarseðlinum?
- Heildartekjur ársins
- Greidd staðgreiðsla og tryggingagjöld
- Reiknaður tekjuskattur
- Persónuafsláttur (nýttur eða ónýttur)
- Lokaniðurstaða: Endurgreiðsla eða greiðsluskylda
Hvenær kemur hann út?
Álagningarseðill einstaklinga birtist venjulega í maí.
Af hverju skiptir hann máli?
Álagningarseðillinn er lokaútreikningur skattsins og staðfestir endanlega skattstöðu þína
gagnvart ríkissjóði.
Fyrir aðila í rekstri getur þessi útreikningur haft veruleg áhrif á fjárhag.
Ef þú skuldar: Þarf að greiða til baka, hægt er að semja um greiðsluáætlun.
Ef þú átt inni: Endurgreiðsla fer sjálfkrafa inn á bankareikning ef hann er skráður hjá
skattinum.
Gott er að hafa í huga:
- Rétt útfyllt framtal = rétt álagning
- Seint eða rangt framtal getur leitt til hærri skattgreiðslu
- Álagningu má kæra – innan 60 daga frá útgáfu
Hvernig hjálpar Payday?
Payday hentar flestum þeim sem eru í rekstri.
Bókhaldskerfið:
- Heldur utan um tekjur og útgjöld
- Sendir skilagreinar á viðeigandi aðila á réttum tíma
- Hjálpar þér að hafa yfirsýn yfir reksturinn
- Minnkar líkur á óvæntum skattareikningum
Með góðu utanumhaldi yfir árið tryggir það að öll opinber gjöld séu greidd á réttum tíma.
Ef þú vilt fá góða og skýra yfirsýn yfir reksturinn þá er Payday bókhaldskerfið sem hentar
fyrir þig.