Payday teymið heldur áfram að rúlla út nýjungum og það er hellingur fleira á leiðinni!
Payday Laun
Nýrri áskriftarleið hefur verið bætt við fyrir ykkur sem vantar eingöngu einfalt og öflugt launakerfi. Verðið fyrir þessa áskriftarleið er einungis 3.900 + vsk fyrir 1-3 starfsmenn og 5.900 + vsk fyrir 4 starfsmenn og fleiri. Launavinnslan hefur aldrei verið einfaldari!
Zapier + Payday = Sjálfvirkni
Nú getur þú tengt Payday við þúsundir annarra kerfa og þannig sjálfvirknivætt ferla sem annars taka þig langan tíma. Væri gaman að heyra frá þeim sem sjá tækifæri með þessa lausn. Meiri möguleikar munu bætast við fljótlega og við viljum endilega heyra frá ykkur ef þið eruð með einhverjar hugmyndir.
Möguleikarnir eru endalausir!
Payday á Zapier
Payday API
Margir eru nú þegar að nýta Payday API þjónustuna til að tengja sín kerfi við Payday. Við erum stöðugt að bæta við fleiri möguleikum í gegnum þessa þjónustu og núna bætist eftirfarandi við:
- Bóhaldslyklar – sækja alla bókhaldslykla fyrirtækis
- Lánadrottnar – sækja lánadrottna og hreyfingar
- Hreyfingalisti – sækja hreyfingar lykla eftir tímabili, viðskiptavini eða lánardrottinn
- Notendur – sækja upplýsingar um alla notendur
- Viðskiptavinir – leita að viðskiptavinum eftir t.d. kennitölu eða nafni
Nánari upplýsingar í API skjöluninni
Framundan
- Payday Bókhald – bankaafstemming
- Tenging við Shopify
- Ennþá meiri Payday API virkni
- Taka á móti rafrænum reikningum
- Vörukerfi – einföld leið til að halda utan um vörulistann og lagerinn
- Sölupantanir – tengt vörukerfinu og einfalt að breyta í reikninga