Vörukerfi
Hefur líklega verið mest umbeðna viðbótin hjá okkur undanfarið. Með vörukerfinu getur þú stýrt vörum niður á bókhaldslykla, séð hreyfingar á vörunni og hvað þú átt á lager. Vara er valin á reikninga, tilboð og áskriftarreikninga sem einfaldar ferlið og sparar innslátt. Vörunúmer (SKU) kemur á reikninginn og er sent með inná rafræna reikninga (XML).
Einföld leið til að halda utan um vörulistann og lagerinn!
Framundan í vörukerfinu
- Utanumhald á kostnaðarverði og birgðaverðmæti
- Söluskýrslur
- Tengingar við Shopify/WooCommerce
- Vörur í erlendri mynt
- Innlestur á vörum úr Excel
Móttaka rafrænna reikninga
Auk þess að geta sent reikninga rafrænt í gegnum Payday er nú hægt að taka á móti þeim rafrænt sömuleiðis. Ef sá sem þú ert að versla við getur sent reikninga ræfrænt getur þú móttekið þá reikninga beint inn í Payday. Mótteknir reikningar eru lesnir sjálfkrafa inn í Payday og birtast sem útgjöld í stöðunni Drög á útgjaldarsíðunni. Rafrænir reikningar færa þér mikinn tímasparnað þar sem allar upplýsingar af reikningi birtast sjálfkrafa í þínu bókhaldi og handvinnan er úr sögunni.
Nánar um móttöku rafrænna reikninga
Innlestur á færslum úr Excel í dagbók
Þú getur lesið inn færslur úr Excel skjali inn í dagbók (Aðgerðir → Hlaða upp skrá). Til verða nýjar færslur í dagbókinni sem hægt er að breyta og bóka.
Reikningar
- Stofnaðu kröfu eftir á þó svo að eindagi er liðinn, nýr eindagi er valinn og krafan er stofnuð
- Ef það gleymdist að velja rafrænan reikning (XML) þegar reikningur var stofnaður þá er auðvelt að senda rafræna reikninginn eftir á
- Þegar Excel skjal fyrir reikninga er sótt þá inniheldur skjalið sér flipa þar sem reikningarnir koma í einni línu. Hinn flipinn inniheldur áfram allar línur á reikningum
Breytingar á valmynd -> Nýr flokkur (Sala)
Allar aðgerðir tengdar sölu eru nú sameinaðar undir flokknum “Sala” til að einfalda aðgengi og minnka umfang valmyndarinnar.
Bókhald
- Þegar verið er að stofna eða breyta bókhaldslyklum getur þú valið hvort opið sé á beina bókun eða fest VSK á lykilinn
- Allir bókhaldslyklar og RSK lyklar með VSK á sér koma nú fram á VSK sundurliðun
- Sjálfgefnum bókhaldslykli á lánardrottni má breyta ef staðan á honum er 0 kr.
- Fela má bakfærðar færslur í hreyfingalista og færslubók
Annað
- Launagreiðslu er nú hægt að eyða beint innan úr launakeyrslunni sjálfri (Aðgerðir → Eyða launakeyrslu)
- Flýtilykili bætt við (ALT+N) til að stofna nýjan t.d. nýjan reikning og viðskiptavin
- Tölverðar úrbætur hafa verið gerðar til að auka hraðvirkni í kerfinu
Framundan
- Bankaafstemming – útgáfa 2
- Vöru- og birgðakerfi – útgáfa 2
- Dagbók – útfgáfa 2
- Launakerfi – ýmsar viðbætur sbr. laun fyrir U16
- Meiri sveiganleiki varðandi skil á VSK og staðgreiðslu
- Payday API – Áskriftarreikningar, tilboð, vörur o.fl.