Afstemming
Nú er stungið sjálfkrafa upp á pörun fyrir:
- Greiðslu á staðgreiðslu og tryggingagjaldi
- Greiðslum til lífeyrissjóða og stéttarfélaga
- Greiðslum á útborguðum launum
- Greiðslu á VSK
Það eina sem þú þarft að gera er að athuga hvort þetta sé ekki allt í lagi og staðfesta pörunina.
Laun
- Með einföldum hætti er nú hægt að hlaða inn tímaskráningum beint inn í launakeyrslu. Nánari upplýsingar á hjálpinni
- Fyrir hverja launakeyrslu er nú hægt að sækja skilagreinar staðgreiðslu, lífeyris- og stéttarfélaga
- Til að einfalda millifærslu á launum þá er hægt að sækja launaskrá fyrir launakeyrslu til að styðjast við í vinnslunni
Reikningar
- Þegar reikningar eru kreditfærðir er hægt að velja dagsetningu sem kreditreikningurinn á að bókast á
- Reikningar í erlendum gjaldmiðlum styðja nú upphæðir með aukastöfum
- Vörunúmer kemur nú sjálfkrafa á Shopify og WooCommerce reikninga
Bókhald
- Leita má eftir kennitölu lánardrottins og viðskiptavinar í útgjöldum, dagbók og afsemmingu
- Innlestur á lánardrottnum úr Excel er aðgengilegur undir Bókhald → Lánardrottnar → Aðgerðir
- Taka má út yfirlit yfir bókhaldslykla í Excel eða PDF
- Hægt er að bæta viðhengjum við færslu í færslubók
- Þegar stöðulistar eru teknir út þá má núna handslá dagsetningar
Payday API
- Nú er hægt að vinna með vörur í gegnum API
- Þegar reikningur er stofnaður í gegnum API þá er hægt að bæta vörum inná reikningslínu.
Framundan
- Meiri sveigjanleiki varðandi skil á VSK
- Aðgangsstýringar notenda
- Vöru- og birgðakerfi – útgáfa 2
- Dagbók – útgáfa 2
- Sölupantanir/afgreiðsluseðlar
- Payday API – Áskriftarreikningar, tilboð