Eftirfarandi nýjungar bættust við Payday við síðustu uppfærslu.
Payday Laun – launakeyrslur í vinnslu
Þegar þú byrjar að vinna í launakeyrslu þá vistast hún sjálfkrafa þannig að þú getur alltaf farið til baka í launakeyrsluna og breytt áður en hún er stofnuð. Þessi nýjung einfaldar launavinnsluna til muna og gerir þér kleift að vinna launakeyrsluna yfir lengra tímabil.
WooCommerce tenging
Fyrsta útgáfa af WooCommerce viðbótinni í Payday er komin út. Þegar pöntun er gerð í vefverslun þinni þá stofnast sjálfkrafa reikningur í Payday og er bókaður í bókhaldið. Hægt er að kynna sér þessa viðbót á hlekknum hér að neðan eða með því að hafa samband við okkur.
Aðrar minni breytingar og lagfæringar
- Netfang og heimilisfang er núna valkvætt á viðskiptavin
- Þegar launakeyrsla er gerð á 0 kr þá skila Payday inn núll skýrslu fyrir það launatímabil.
- Vantar prefix á fylgiskjalsnúmer í Excel og PDF export á færslubók
- Bakfærslur í hreyfingalista og færslubók eru merktar sértaklega í excel/pdf listum
- PDF reikningur er sóttur á sama tungumáli og er stillt á viðskiptavin
- Greiðsla á útborguðum launum er bókuð sjálfvirkt þegar greiðslubunki er staðfestur
- Hægt er að velja hvaða forskeyti er notað á dagbókarfærslur
- Staða lánardrottna birtist núna í lánadrottnalista