Við höfum gefið út tvær nýjar útgáfur af Payday frá síðustu uppfærslu og hér förum við yfir það helsta. Nú getur þú skráð þig inn með Passkey, unnið með mörg útgjöld í einu og reikningsnúmer koma strax. Bókarar fá líka ný verkfæri í afstemmingunni og meiri upplýsingar í Excel skýrslunum, eitthvað sem þeir hafa beðið um.
Helstu nýjungar
Reikningsnúmer úthlutað strax
Við erum aftur farin að úthluta reikningsnúmerum um leið og reikningur er stofnaður. Þú þarft því ekki lengur að bíða í mínútu eftir númerinu. Þetta gildir líka um reikninga sem eru stofnaðir í gegnum API. Það kemur sér sérstaklega vel ef þú sendir reikninginn strax frá þér eða ef annað kerfi þarf að fá númerið um leið.
Enginn skyldusparnaður hjá 70 ára og eldri
Payday hættir nú sjálfkrafa að reikna skyldulífeyrissparnað hjá starfsmönnum sem eru 70 ára og eldri. Þú þarft því ekki lengur að stofna sérstaka launaliði fyrir þá og minni hætta er á að iðgjald sé greitt þegar þess þarf ekki. Athugaðu að þetta á ekki við um séreignarsparnað og stéttarfélagsgjöld.
Ójafnað í aldursgreiningu krafna
Excel skjalið fyrir aldursgreiningu krafna inniheldur nú allar hreyfingar og sérstakan dálk fyrir ójafnað. Þar sjást greiðslur sem hafa ekki verið tengdar við ákveðna reikninga. Þannig sérðu raunverulega stöðu hvers viðskiptavinar og finnur fljótt greiðslur sem þarf að jafna á móti reikningum.

Óparaðar færslur og innlestrar í afstemmingu
Nú er hægt að sækja Excel lista yfir óparaðar bankafærslur í afstemmingunni. Það er þægilegt þegar þú vilt fara yfir opnar færslur með bókaranum þínum eða kanna hvaðan greiðslur koma.

Þú getur líka séð alla innlestra með því að smella á punktana þrjá við bankareikninginn og velja Innlestar. Ef innlesturinn kom úr Excel skrá (en ekki í gegnum bankatengingu) er hægt að afturkalla hann með einni aðgerð. Einnig er nú hægt að eyða mörgum færslum í einu í afstemmingunni.
Magn á launaliðum í Excel launalista
Excel launalistinn sýnir nú magn við hvern launalið fyrir sig. Þetta auðveldar til dæmis útreikning á desember- og orlofsuppbót.

Innskráning með Passkey og rafrænum skilríkjum
Nú getur þú skráð þig inn í Payday með Passkey, þ.e. fingrafari, andlitsgreiningu eða PIN-númerinu á tækinu þínu, án lykilorðs. Þú setur Passkey upp undir Stillingar > Notendur og getur líka gefið þeim nöfn eða eytt þeim þar.
Margar færslur í einu í útgjöldum
Nú getur þú hakað við mörg útgjöld í listanum og bókað þau, eytt þeim eða merkt þau sem greidd í einni aðgerð. Þetta sparar mikinn tíma þegar þú færð marga rafræna reikninga í einu og vilt bóka þá alla.
Smáatriðin skipta máli – Ýmsar breytingar
- Hægt er að skrá magn með 4 aukastöfum á reikningum, áskriftarreikningum, tilboðum, sölupöntunum og útgjöldum.
- Betri vöruleit í reikningagerð með lengri lista.
- Þú getur nú valið hvað fer í tilvísunarreitinn á kröfu.
- Nýr listi sýnir færslur sem koma í veg fyrir að hægt sé að skila VSK skýrslu, t.d. bókun á útskattslykil án tekjufærslu, og hvað er athugavert við hverja færslu.
- Dagsetning skráningar sést nú í lista yfir hreyfingar á vöru.
- Hámark er nú 20 viðhengi á hvern reikning, útgjaldafærslu, sölupöntun, tilboð og dagbókarfærslu.
- Bankatenging er gerð óvirk sjálfkrafa ef auðkenningarvilla kemur upp.
- API: hægt að fletta upp reikningum eftir greiðsludegi og niðurfellingardegi.
- Öryggisumbætur á vefnum og API.
Villuleiðréttingar
- VSK var settur á færslur í Excel innlestri á útgjöldum eða dagbók hjá fyrirtækjum sem eru ekki VSK skyld.
- Eindagi fylgdi ekki gjalddaga viðskiptavinar þegar reikningur var stofnaður út frá sölupöntun.
- Ekki er lengur hægt að bakfæra færslur eða kreditfæra reikninga langt fram í tímann.
- Ekki var hægt að setja bankareikning í geymslu.
- Ekki er lengur hægt að stofna kröfu á viðskiptavin án kennitölu.
- Tilkynningagluggi lokast nú þegar smellt er utan hans.
- Excel útflutningur útgjalda tekur nú mið af stöðusíu.
- Skýrari villuboð þegar VSK leiðrétting er send inn á lokuðu fjárhagsári.
- Sales ledger accounts endapunkturinn í API skilaði ekki öllum lyklum.
- Rafrænir reikningar með afslætti á línum voru stundum lesnir rangt inn.
Vissir þú?
- Formúlur í upphæðarreitum: Þú getur skrifað reikningsdæmi, t.d. 12500*3 beint í upphæðarreit og Payday reiknar útkomuna.
- Margar kvittanir í einu: Dragðu margar kvittanir inn í einu. Þær eru lesnar inn í bakgrunni á meðan þú heldur áfram að vinna.
- Leit í afstemmingu: Notaðu leitina til að finna ákveðna færslu fljótt.
- Bjóða vinum: Þú getur boðið vinum að nota Payday undir „Bjóða vinum“ í valmyndinni vinstra megin. Þeir sem skrá sig með hlekknum fá 30% afslátt í 3 mánuði og þú færð 30% af áskriftargjaldi þeirra sem afslátt af þínu eigin gjaldi í 6 mánuði.
- Kvittanir beint úr símanum: Taktu mynd af kvittuninni og sendu hana beint í Payday, annaðhvort í gegnum útgjöld eða með tölvupósti.
Nýjungar á leiðinni!
Við erum með nóg í prófunum. Meðal þess sem er væntanlegt á næstunni:
- Reglur í afstemmingu
- Innlestur áskriftarreikninga í gegnum Excel
- Greining á flokkum útgjalda með gervigreind (AI)
- Fagaðilagátt: yfirsýn yfir þína viðskiptavini, skráning nýrra félaga, stjórn reikninga o.fl.
- Uppgjör frá kortafyrirtækjum í afstemmingu
- Verkbókhald og tímaskráning
Takk fyrir ábendingarnar
Margar af þessum breytingum koma beint frá ykkur notendum, takk fyrir að láta okkur vita hvað má betur fara. Hugmyndir að nýjungum getur þú skráð á hugmyndir.payday.is. Ef þú ert með spurningar er alltaf hægt að hafa samband við þjónustuverið okkar.
Við hvetjum notendur til að tryggja öryggi á Payday aðgangnum sínum.
